10.08.26 - 21:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski deildabikarinn: Hádramatískur sigur hjá Plymouth

Mynd: Plymouth

Mynd: Plymouth
Plymouth 2 - 0 Exeter
1-0 Alex Hartridge ('90 )
2-0 Aribim Pepple ('90 )
Rautt spjald: Ethan Sutherland, Exeter ('87)

C-deildarliðið Plymouth var síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 2. umferð enska deildabikarsins eftir sigur á D-deildarliðinu Exeter í kvöld.
Það dró til tíðinda undir lok leiksins þegar Ethan Sutherland, leikmaður Exeter, fékk sitt annað gula spjald og var rekinn af velli.
Þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma kom Alex Hartridge Plymouth yfir þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
Ariibim Pepple innsiglaði sigurinn stuttu síðar eftir vandræðagang í vörn Exeter. Plymouth fær nýliðana í úrvalsdeildinni, Coventry, í heimsókn í næstu umferð.