Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   mið 07. maí 2025 21:33
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeild kvenna: ÍBV skoraði fimm í fyrsta sigrinum
Kvenaboltinn
Olga Sevcova var öflug í sigri Eyjaliðsins
Olga Sevcova var öflug í sigri Eyjaliðsins
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
ÍBV 5 - 1 Grótta
1-0 Olga Sevcova ('8 )
2-0 Allison Grace Lowrey ('28 )
2-1 Hulda Ösp Ágústsdóttir ('38 )
3-1 Olga Sevcova ('53 )
4-1 Allison Grace Lowrey ('73 )
5-1 Edda Dögg Sindradóttir ('93 )
Lestu um leikinn

ÍBV vann sinn fyrsta leik í Lengjudeildinni í ár með því að skella Gróttu, 5-1, á Þórsvellinum í Vestmannaeyjum í kvöld.

Olga Sevcova kom Eyjakonum á bragðið á 8. mínútu er Allison Clark þræddi hana í gegn og tuttugu mínútum síðar skoraði Allison Grace Lowrey annað markið með stórglæsilegu skoti.

Grótta komst aftur inn í leikinn á 28. mínútu eftir mistök Guðnýjar Geirsdóttur sem fór í skógarhlaup og datt boltinn einhvern veginn fyrir Huldu Ösp sem skoraði af löngu færi.

Eyjakonur fóru með sanngjarna 2-1 forystu inn í hálfleik og héldu áfram að bæta við mörkum í þeim síðari.

Olga gerði þriðja markið og annað mark sitt í leiknum á 53. mínútu, aftur eftir sendingu frá Allison Clark og var það Olga sem stangaði boltanum í netið.

Allison Grace og Edda Dögg Sindradóttir bættu við tveimur mörkum á síðustu tuttugu mínútum leiksins. Allison Grace átti laglegan sprett inn í teiginn og kláraði vel, en svo sáu varamennirnir um fimmta markið er Lilja Kristín Svansdóttir fann Eddu í teignum sem rak síðasta naglann í kistu Gróttu.

Fyrsti sigur ÍBV staðreynd og liðið komið með þrjú stig en Grótta er án stiga eftir tvo leiki.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner