Heimild: Vísir
Stjarnan og Þór/KA gerðu 2:2 jafntefli í Bestu deild kvenna á Akureyri í gær þar sem heimakonur jöfnuðu metin á 90. mínútu.
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var ósáttur eftir leikinn og þá sérstaklega við framkomu gæslumanns Þórs/KA. Eftir jöfnunarmarkið tók gæslumaðurinn upp á því að klappa framan í Óskar, sem var að vonum ósáttur.
Óskar ræddi við Sýn eftir leik og var spurður út í atvikið.

Lestu um leikinn: Þór/KA 2 - 2 Stjarnan
„Það er bara dónaskapur að hálfu gæslumanns sem ég ætla senda kvörtun og fjórði dómarinn þurfti að stoppa mig því hann klappaði bara í andlitið á mér þegar þær jafna þarna úr hornspyrnunni, hleypur upp að mér og klappar í andlitið á mér og það er bara mikill dónaskapur og hann er svo sem búinn að biðjast afsökunar og ég þakkaði honum pent fyrir og sagði afsökunarbeiðni ekki samþykkt,“ sagði Óskar og hélt áfram.
„Það sýður ennþá á mér eins og þú sérð, ég leyfi tilfinningum bara að tala. Það var bara dónalegt og svo lét hann nokkur vel valin orð falla þegar ég bað hann að hætta að klappa í andlitið á mér og það er alltaf ástríða. Ég veit alveg að koma hérna og vera spila við Þór/KA að bærinn styður við liðið og væntanlega er fólki ekki sama.
Hann fór bara yfir vel línuna og dómarinn skráði það í skýrsluna hjá sér eftir leikinn því að fjórði dómarinn gaf mér mikinn kúdus fyrir það að halda ró minni því það var mjög súrt að fá markið á sig en fá svo einhvern trúð hérna klappandi í andlitið á mér, það hjálpaði ekki, ég get sagt þér það,“ sagði Óskar að lokum í samtali við Sýn Sport.