Fotbolti.net
07.06.20 - 21:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rúnar Kristins: Mikil framför frá síðustu tveimur leikjum

Auglýsing
Rúnar Kristinsson.

Rúnar Kristinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég sá vilja í liðinu til að hlaupa og hlaupa fyrir hvor aðra," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir sigur á Víkingum, 1-0, í Meistaraleik KSÍ.
„Við fengum aðeins fleiri kílómetra í fæturnar á leikmönnum núna en í undanförnum leikjum. Það er eðlilegur stígandi í okkar leik og okkar formi. Ég er ánægður með það."

KR-ingar hafa ekki litið vel út í síðustu æfingaleikjum, en þeir mættu inn í þennan leik af miklum krafti. „Þetta er mikil framför frá síðustu tveimur leikjum, sigur er alltaf góður og að halda hreinu er líka mjög gott."

Stefán Árni Geirsson, strákur sem var í láni hjá Leikni í Breiðholti á síðustu leiktíð, byrjaði leikinn í kvöld. „Stefán hefur alla hæfileika til að vera toppfótboltamaður. Hann þarf að byrja á því að vera toppleikmaður í Pepsi Max-deildinni áður en hann fer að hugsa eitthvað lengra. Við erum að hjálpa honum á þeirri leið. Þetta er strákur sem á eftir að fá fullt af mínútum í sumar."

Viðtalið við Rúnar má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.