Fotbolti.net
09.07.26 - 21:55
Ívan Guðjón Baldursson

HM: Þægilegt fyrir Frakkland gegn Marokkó

HM: Þægilegt fyrir Frakkland gegn Marokkó
Canon

Mynd: EPA

Frakkland 2 - 0 Marokkó
1-0 Kylian Mbappe ('60)
2-0 Ousmane Dembele ('66)
Frakkland mætti Marokkó í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í kvöld og var staðan markalaus eftir fyrri hálfleikinn.

Frakkar voru talsvert sterkari aðilinn og fengu mikið af góðum færum en boltinn rataði þó ekki í netið.

Yassine Bounou markvörður Marokkó var hetjan í fyrri hálfleik þar sem hann varði nokkrar góðar marktilraunir ásamt því að verja vítaspyrnu frá Kylian Mbappé.

Frakkar skiptu um gír í síðari hálfleik og átti Marokkó engin svör við einstaklingsgæðunum í liðinu. Marokkó sá varla til sólar og skapaði aldrei hættu en Mbappé skoraði laglegt mark á hinum endanum eftir að boltinn datt fyrir hann við vítateigslínuna og varnarmennirnir gáfu honum alltof mikið pláss til að athafna sig.

Ousmane Dembélé tvöfaldaði svo forystuna sex mínútum síðar þegar hann fékk alltof mikið pláss rétt utan vítateigs.

Marokkó átti engin svör og komust Frakkar nálægt því að bæta þriðja markinu við, en tókst ekki. Lokatölur urðu því 2-0 og mætir Frakkland annað hvort Spáni eða Belgíu í undanúrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.