Besta deild kvenna: Ída Marín skoraði fimm á hálftíma er FH tók toppsætið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þremur leikjum var að ljúka í Bestu deild kvenna þar sem FH náði toppsætinu af Breiðabliki.
FH-ingar gerðu sér lítið fyrir og skoruðu sjö mörk á heimavelli gegn Þrótti R. eftir að hafa lent tveimur mörkum undir snemma leiks.
Alexia Marin Czerwien skoraði bæði mörk Þróttara en Ída Marín Hermannsdóttir lék á alls oddi og svaraði með fimm mörkum á innan við hálftíma. Staðan var þá orðin 3-2 í leikhlé og 5-2 í upphafi síðari hálfleiks.
Hún gerði út um viðureignina upp á eigin spýtur og komust Deja Jaylyn Sandoval, Þórdís Elva Ágústsdóttir og Berglind Freyja Hlynsdóttir einnig á blað.
FH fer í toppsæti deildarinnar með þessum 7-3 sigri eftir að Breiðablik tapaði afar óvænt á útivelli gegn botnliði Fram. FH er með 23 stig eftir 10 umferðir, tveimur stigum fyrir ofan Breiðablik.
Taylor Marie Hamlett kom Fram yfir snemma leiks gegn Blikum en Edith Kristín Kristjánsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel snéru stöðunni við.
Blikar leiddu 1-2 í leikhlé en Taylor jafnaði metin á lokakaflanum áður en Harpa Helgadóttir gerði óvænt sigurmark, svo lokatölur urðu 3-2 fyrir Fram sem er áfram á botni deildarinnar.
Fram er með 7 stig eftir 10 umferðir, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Að lokum gerði Margrét Árnadóttir eina markið í sigri Þórs/KA gegn Grindavík/Njarðvík.
Margrét skoraði snemma leiks og vörðust Akureyringar vel til að halda forystunni til leiksloka.
Gestirnir frá Reykjanesi bönkuðu á dyrnar en þeim var ekki hleypt inn.
FH 7 - 3 Þróttur R.
0-1 Alexia Marin Czerwien ('16)
0-2 Alexia Marin Czerwien ('20)
1-2 Ída Marín Hermannsdóttir ('31)
1-2 Ída Marín Hermannsdóttir ('33 , misnotað víti)
2-2 Ída Marín Hermannsdóttir ('33)
3-2 Ída Marín Hermannsdóttir ('35)
4-2 Ída Marín Hermannsdóttir ('47)
5-2 Ída Marín Hermannsdóttir ('57)
6-2 Deja Jaylyn Sandoval ('69)
6-3 Þórdís Elva Ágústsdóttir ('81)
7-3 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('93)
Lestu um leikinn
Fram 3 - 2 Breiðablik
1-0 Taylor Marie Hamlett ('10)
1-1 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('19)
1-2 Líf Joostdóttir van Bemmel ('24)
2-2 Taylor Marie Hamlett ('73)
3-2 Harpa Helgadóttir ('89)
Lestu um leikinn
Þór/KA 1 - 0 Grindavík/Njarðvík
1-0 Margrét Árnadóttir ('3)