„Það er erfitt að vinna leiki ef maður þarf alltaf að skora fjögur“

Einar Guðnason, þjálfari Víkings, var svekktur eftir 1-3 tap gegn ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Guðnason, þjálfari Víkings, var svekktur eftir 1-3 tap gegn ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur tapaði 1-3 gegn ÍBV á Víkingsvelli í kvöld í 11. umferð Bestu deildarinnar. Einar Guðnason, þjálfari Víkings, var svekktur með niðurstöðuna eftir leik.
„Ég er bara gríðarlega vonsvikinn með tapið. Það eru svona fyrstu viðbrögðin, maður er bara ótrúlega svekktur með að hafa tapað þessum leik.“
Víkingur fékk færi til að gera betur í leiknum en náði ekki að nýta þau.
„Það vantaði náttúrulega bara upp á að nýta færin en við megum ekki gleyma því heldur að við fáum á okkur þrjú mörk. Það er erfitt að vinna leiki ef maður þarf að skora fjögur alltaf.“
„Vissulega eru þetta löng skot en við hefðum kannski getað gert þeim aðeins erfiðara fyrir í þeim. Fyrst að maður er búinn að fá á sig þrjú mörk þá verður maður að gera vel og skora fjögur. Við fengum alveg færi til þess en vorum bara ekki að klára það.“
Hann telur að sjálfstraustið vanti helst inni á báðum teigum.
„Það vantar smá sjálfstraust, sérstaklega í teigunum hvorum megin í augnablikinu. Við þurfum einhvern veginn að laga það eða reyna að bæta það. Klára færin og sýna meiri aggressjón þegar andstæðingurinn er kominn nálægt markinu okkar og svo bara hvort við getum styrkt liðið okkar eitthvað.“
Félagaskiptaglugginn er að opna og Einar segir Víkinga alltaf vera að skoða möguleika á að styrkja hópinn.
„Við erum alltaf að skoða eitthvað og ef eitthvað er sem virkilega styrkir hópinn þá þurfum við að skoða það ennþá betur.“
Einar var einnig spurður út í markmannsstöðuna og hvort eitthvað væri til í sögusögnum um breytingar þar.
„Katla er búin að standa sig vel eftir að hún kom inn í liðið fyrir Grace og við getum ekki kennt henni um þessi mörk í dag.“
„Það er bara með markmannsstöðuna eins og aðrar stöður, ef það er eitthvað geggjað í boði og við getum uppfært það þá þarf að skoða það.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér fyrir ofan.






