Fotbolti.net
07.08.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Veron skrifaði undir fjögurra ára samning (Staðfest)

Argentínumaðurinn Juan Sebastian Veron skrifaði seint í gærkvöldi undir fjögurra ára samning við Chelsea eftir að hafa staðist læknisskoðun. Veron kostar 15 milljónir punda frá Manchester United en hann skrifaði undir samning við Lundúnaliðið aðeins nokkrum klukkustundum á eftir Joe Cole.
Sir Alex Ferguson stjóri Man Utd hefur litla trú á að Chelsea hampi enska meistaratitlinum á þessari leiktíð. Hann segir að vissulega hafi liðið verið að kaupa sterka leikmenn sem eiga eftir að gera góða hluti fyrir félagið í framtíðinni en þetta gerist bara ekki allt í einu. Þeir þurfa fyrst að fá leikreynslu í toppbaráttunni að mati Ferguson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.