Fotbolti.net
07.08.14 - 21:23
Gunnar Birgisson

Ólafur Páll: Klúðrum einvíginu á einstaklingsmistökum

Auglýsing
Ólafur Páll Snorrason

Ólafur Páll Snorrason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Leik FH og sænska liðsins Elfsborg lauk nú rétt í þessu í Kaplakrika og höfðu heimamenn sigur 2-1, því miður var það ekki nóg fyrir þá því fyrri leikurinn tapaðist 4-1 á heimavelli Elfsborg, Borås Arena. Ólafur Páll Snorrason fyrirliði FH var vitaskuld svekktur með að komast ekki áfram, og þrátt fyrir hetjulega baráttu í kvöld dugði það þeim ekki alveg til þess að ná markmiði sínu.
,,Nei það er hárrétt hjá þér, við vorum sorglega nálægt því í dag, en við klúðruðum einvíginu á einstaklingsmistökum og það bara má ekki á þessu leveli þannig við erum mjög svekktir og sárir í dag,\" sagði Ólafur í samtali við Fótbolta.net.

,,Við vissum það alveg að ef við myndum spila almennilega í dag þá myndum við eiga mjög góða möguleika í dag eins og sást.\"

,,Við fengum fullt af færum í dag og vorum að spila frábærlega á köflum, áttum að skora fleiri mörk og að mínu mati áttum við að komast áfram\"

Yfirburðir FH í leiknum voru algjörir og klaufaskapur hjá þeim að tapa fyrri leiknum svona stórt.

,,Við gerðum ákveðin mistök sem eyðilögðu fyrir okkur leikinn úti og það varð okkur bara að falli í þessu einvígi,\" sagði Ólafur Páll.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.