22.10.26 - 15:08
Elvar Geir Magnússon
Valsarar kveðja Tryggva - „Takk fyrir allt“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Hrafn Haraldsson leikur sinn síðasta leik fyrir Val gegn Stjörnunni á laugardag. Eftir sex tímabil á Hlíðarenda heldur hann heim í ÍA.
Valsarar kveðja Tryggva með færslu á Instagram með titlinum „Takk fyrir allt, Tryggvi Hrafn“.
„Tryggvi hefur verið frábær liðsfélagi og fyrirmynd innan vallar sem utan og skilur eftir sig stórt skarð," segir í færslunni.

TENGT EFNI
Stórbætti stoðsendingametið - „Búinn að heyra um þetta met margoft frá Adam Ægi vini mínum"
„Tryggvi Hrafn kom til Vals fyrir tímabilið 2021 og hefur síðan leikið 192 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 82 mörk. Hann hefur verið einn af burðarásum liðsins allan þann tíma, vinnusamur, hættulegur og alltaf klár."
Í ár hefur hann svo átt eitt sitt besta tímabil, skorað tíu mörk í Bestu deildinni og slegið stoðsendingametið í efstu deild, met sem faðir hans, Haraldur Ingólfsson, átti á sínum tíma.
Í ár hefur hann svo átt eitt sitt besta tímabil, skorað tíu mörk í Bestu deildinni og slegið stoðsendingametið í efstu deild, met sem faðir hans, Haraldur Ingólfsson, átti á sínum tíma.