Spáð í spilin fyrir lokaumferðina - „Hver er eiginlega að skrifa þetta handrit?“

Annað Akureyrarliðið mun falla.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Lokaumferðin hefst klukkan 14:00 á laugardag.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Logi Páll og Aron Elvar.

Mynd: Kári Snorrason

Saint Pete er bjartsýnn.

Mynd: TikTok/KAAkureyri

,,Þór þekkir það bara betur að vera í Lengjunni, þó ég vilji hafa bæði lið uppi því þá erum við KA-menn yfirleitt með örugg 6-9 stig."

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Annað Akureyrarliðið mun falla.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Bæði Akureyrarliðin berjast um eitt laust sæti í Bestu deildinni á næstu leiktíð. Þór er með örlögin í sínum eigin höndum og geta með sigri á FH tryggt sér áframhaldandi sæti í deildinni.
KA tekur á sama tíma á móti föllnum Eyjamönnum og þurfa að treysta á að Þór vinni sinn leik ekki.
Fótbolti.net hafði samband við stuðningsmenn beggja liða og fékk þá til að spá fyrir um úrslitin á laugardag.

Annað Akureyrarliðið fellur: Tölfræðin segir þessa sögu
Það er auðvitað ótrúlegt að hugsa til þess að þessi staða sé komin upp, að annað Akureyrarliðið muni fella hitt í lokaumferðinni. Hver er eiginlega að skrifa þetta handrit?
Við Þórsarar erum í frábærum málum og það að vera með þetta í eigin höndum eykur bjartsýnina í manni töluvert. Þetta FH-lið er hins vegar alls ekkert grín og það bíður okkar mjög erfiður leikur á laugardaginn, þetta er langt frá því að vera komið. Maður ætti hins vegar að finna sér eitthvað annað áhugamál ef maður trúir því ekki að liðið sitt geti unnið úrslitaleiki, sérstaklega í ljósi þess að Þórsliðið vann einn slíkan í lokaumferðinni í fyrra. Allir þessir rúmlega 20 uppöldu Þórsarar sem hafa spilað með liðinu í sumar eru árinu eldri en í fyrra og reynslunni ríkari. Það hefur verið gríðarlegur stígandi í spilamennsku ungu mannanna og þrátt fyrir að sum hlaðvörp virðist ekki vera meðvituð um það, eru þessir drengir alls ekki að spila sína fyrstu leiki í meistaraflokki núna í lokaumferðunum.
Ég spái að það verði dramtík í þessu. Bæði Akureyrarliðin vinna sína leiki en sigurmarkið í Kaplakrika kemur úr umdeildri vítaspyrnu á lokamínútunum sem Fannar Daði sækir. Þórs-legendið Aleksandar Linta verður svo hársbreidd frá því að gera okkur greiða fyrir norðan en nær því þó ekki þegar uppi er staðið og KA vinnur þar. Ætli það verði ekki Jakob Snær vinur minn sem skorar þar enda hefur hann verið að spila eins og prime Cristiano síðan hann gifti sig í ágúst.
Allavega. Við Þórsarar erum einum leik frá fyrirheitna landinu og það er ekki annað hægt en að trúa því að við komumst þangað. Ég hvet ALLA Þórsara til að fjölmenna í Kaplakrika og styðja okkar menn í þessum lokaleik. Þetta eru strákar sem fóru upp yngri flokkana hjá félaginu og munu gefa allt sem þeir eiga í þennan leik. Hjálpum þeim að koma þessu yfir línuna.
Logi Páll Aðalsteinsson, Þór
Þór heldur sér uppi og fellur Ka menn sem verður rosalega sætt,
KA vinnur hinsvegar sinn leik 4-1 en Þór tekur einnig sigur, 1-2, og halda sér uppi og fagna þvi fram á rauða nótt.
Saint Pete, KA
KA vinnur 3-1, Þór gerir 1-1 jafntefli og KA fer upp!
Haraldur Bolli Heimisson, KA
Á endanum mun fótboltinn sigra á laugardaginn. Ég trúi því ekki ennþá að KA falli, ég bara sé það ekki. Ég trúi því að Jói Kalli geri okkur greiða þar sem hann hefur taugar norður. KA er lið sem á bara heima í toppbaráttu í Bestu Deildinni. Þór þekkir það bara betur að vera í Lengjunni, þó ég vilji hafa bæði lið uppi af því þá erum við KA-menn yfirleitt með örugg 6-9 stig.
KA vinnur spræka eyjamenn 3-0. Grímsi með tvö og svo kemur bróðir hans Hrannar Björn og setur eina sleggju. Á sama tíma vinnur FH 2-1 sigur á þór og Fótboltinn vinnur að lokum.

Lokaumferðin hefst klukkan 14:00 á laugardag.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Logi Páll og Aron Elvar.

Mynd: Kári Snorrason

Saint Pete er bjartsýnn.

Mynd: TikTok/KAAkureyri

,,Þór þekkir það bara betur að vera í Lengjunni, þó ég vilji hafa bæði lið uppi því þá erum við KA-menn yfirleitt með örugg 6-9 stig."

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson



