22.10.26 - 11:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Belgar láta Betu fara (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Belgíska fótboltasambandið gaf það út í dag að Elísabet Gunnarsdóttir yrði ekki áfram þjálfari kvennalandsliðsins. Sambandið óskar Elísabetu góðs gengis á hennar næstu skrefum á ferlinum.
Beta hefur stýrt belgíska liðinu frá því snemma á síðasta ári og stýrði liðinu á EM í fyrra. Liðið vann Portúgal í síðasta leik sínum en komst svo ekki upp úr riðlinum.
Í kjölfarið féll liðið svo úr A-deild Þjóðadeildarinnar eftir naum tap gegn Írlandi í umspili og í sumar endaði liðið einu marki fyrir neðan Skotland í undankeppninni fyrir HM. Belgar duttu svo fyrr í þessum mánuði út í umspilinu um sæti á HM eftir vítaspyrnukeppni gegn Póllandi.
Undir stjórn Betu vann liðið 11 af 23 leikjum sínum.

TENGT EFNI
Segir Belgíu hafa glatað mikilvægum árum undir stjórn Elísabetar
„Þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki staðið undir væntingum hefur Elísabet miðlað til okkar mikilli sérþekkingu á sviði kvennaknattspyrnu og henni tókst að mynda samheldinn hóp með mörgum ungum leikmönnum sem við getum byggt á til framtíðar," segir Pierre Locht sem er íþróttastjóri belgíska sambandsins. Simon Mignolet, fyrrum markvörður Liverpool, er tæknistjóri sambandsins og er það í hans höndum að finna arftaka Betu.
Beta stýrði áður kvennaliði Kristianstad í Svíþjóð á árunum 2009-2023 og þar á undan, 2004-2008, sem þjálfari kvennaliðs Vals.
Beta stýrði áður kvennaliði Kristianstad í Svíþjóð á árunum 2009-2023 og þar á undan, 2004-2008, sem þjálfari kvennaliðs Vals.
End of collaboration between the RBFA and Elisabet Gunnarsdóttir
— Royal Belgian FA (@RoyalBelgianFA) October 22, 2026
The RBFA announces that it has ended its collaboration with Elisabet Gunnarsdóttir, Head Coach of the Red Flames. The RBFA wishes her good luck in the next stage of her career. https://t.co/VOQQJqkabM