07.08.26 - 12:10
Elvar Geir Magnússon
Bayindir frá Man Utd til Celta Vigo (Staðfest)

Altay Bayindir.

Mynd: EPA

Altay Bayindir.

Mynd: EPA
Manchester United hefur lánað markvörðinn Altay Bayindir til Celta Vigo á Spáni út tímabilið.
Celta Vigo greiðir laun tyrkneska markmannsins og eru árangurstengdar greiðslur hluti af samkomulagi milli félaganna. Spænska liðið getur svo keypt hann á 3,5 milljónir punda.
Bayindir er 28 ára og hefur verið hjá United síðan 2023. Hann hefur komið við sögu í 17 leikjum með aðalliðinu.

United lánaði Andre Onana til Trabzonspor fyrr í sumar og fékk Karl Darlow frá Leeds United. Þá er United að selja tékkneska markvörðinn Radek Vitek til Middlesbrough en hann lék á láni hjá Bristol City á síðasta tímabili.