07.08.26 - 10:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Erlingur hluti af samkomulagi Víkings og FH

Erlingur fer í FH ef skiptin nást í gegn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði jöfnunarmark FH gegn KR á miðvikudagskvöld.

Greint var frá því á miðvikudagskvöld að FH hefði samþykkt kauptilboð Víkings í Kjartan Kára Halldórsson.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er hluti af tilboðinu að Erlingur Agnarsson verði leikmaður FH, en hann er uppalinn Víkingur og hefur spilað þar allan sinn feril. Hann hefur verið í takmörkuðu hlutverki hjá Íslandsmeisturunum í ár.
Víkingur greiðir samkvæmt heimildum væna summu fyrir Kjartan Kára, eða um 20 milljónir króna.

TENGT EFNI
FH samþykkir tilboð Víkings
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var viðræðum Víkings og umboðsmanns Kjartans Kára ekki lokið í gærkvöldi, en rætt er um kaup og kjör leikmannsins.
Kjartan Kári er 23 ára kantmaður sem hefur verið lykilmaður FH síðustu tímabil. Fyrir rúmu ári samþykkti FH tilboð frá Val í Kjartan Kára en hann hafnaði þá tækifærinu að fara í Val og endursamdi við FH.