Fotbolti.net
07.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Fjórar semja við Grindavík/Njarðvík (Staðfest) - Crenshaw farin til Portúgals

Júlía er mætt aftur heim

Júlía er mætt aftur heim

Canon

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Kvennaboltinn
Grindavík/Njarðvík sótti fjóra leikmenn á dögunum en þær Júlía Ruth Thasaphong, Birta Birgisdóttir, Hrafnhildur Salka Pálmadóttir og Eva Ýr Helgadóttir eru allar komnar til félagsins. Markvörðurinn Genevieve Jae Crenshaw er þá farin til Portúgals.
Júlía er 23 ára gömul og þekkir vel til hjá Grindavík. Hún er uppalin hjá félaginu og lék með meistaraflokknum frá 2018 til 2022. Eftir stutta dvöl hjá Keflavík sneri hún aftur heim í Grindavík fyrir tveimur árum.

Framherjinn tók þátt í undirbúningstímabilinu með Grindavík/Njarðvík og hefur þegar leikið þrjá leiki með liðinu, tvo í Bestu deildinni og einn í Mjólkurbikarnum.

Birta Birgisdóttir er einnig komin til félagsins á láni frá Víkingi. Hún er 23 ára gömul og býr yfir töluverðri reynslu en hún varð meðal annars bikarmeistari með Víkingi fyrir tveimur árum. Birta hefur þegar komið við sögu í þremur leikjum.

Þá fékk liðið hina 18 ára gömlu Hrafnhildi Sölku Pálmadóttur að láni frá Val. Hún á að baki 32 leiki með yngri landsliðum Íslands og lék síðast með U19 ára landsliðinu á Evrópumótinu í júlí.

Hrafnhildur hefur einnig spilað þrjá leiki. Hún og Birta komu báðar inn af bekknum í sínum fyrsta leik gegn Þrótti en Júlía var þá í byrjunarliðinu.

Markvörðurinn Crenshaw er hins vegar farin frá félaginu eftir að hafa nýtt sér riftunarákvæði í samningi sínum. Hún heldur nú til Portúgals.

Crenshaw lék tíu leiki í sumar, átta í Bestu deildinni og tvo í Mjólkurbikarnum. Síðasti leikur hennar var markalausa jafnteflið gegn Stjörnunni 28. júlí þar sem hún hélt hreinu.

Félagið hefur brugðist við brotthvarfinu með því að fá Evu Ýr Helgadóttur frá Breiðabliki.

Eva er 28 ára gömul og kemur inn í baráttuna um markvarðarstöðuna. Hún hefur leikið í meistaraflokki frá árinu 2012 og staðið á milli stanganna hjá Fylki, Aftureldingu, ÍR, Fjölni, Smára og Selfossi.

Á síðasta ári lék hún með Víkingi og í byrjun þessa árs var hún fengin til Breiðabliks þegar markvarðavandræði komu upp fyrir Evrópuleikina gegn Häcken. Henni var þó ekki ætlað að byrja leikina og fékk á endanum ekki heimild til að vera í leikmannahópnum.

Eva hafði hugsað sér að taka frí frá fótboltanum en ákvað að slá til þegar kallið frá Grindavík/Njarðvík kom og hefur því nýtt ævintýri þar.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.