Fotbolti.net
07.08.26 - 21:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fyrirliði Barcelona á leiðinni til Liverpool

Fyrirliði Barcelona á leiðinni til Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Ronald Araujo, fyrirliði Barcelona, er á leið til Liverpool á láni út tímabilið. Araujo er 27 ára gamall miðvörður.

Fabrizio Romano greinir frá þessum fréttum sem koma eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Romano segir frá því að félögin hafi náð munnlegu samkomulagi. Joe Gomez meiddist á undirbúningstímabilinu og Giovanni Leoni og Jeremy Jacquet eru að ná sér af meiðslum. Þeir hafa ekkert komið við sögu á undirbúningstímabilinu. Þá er Virgil van Dijk nýbyrjaður að æfa eftir HM hléið.

Araujo er 27 ára Úrúgvæi. Hann var gerður að fyrirliða Barcelona í janúar á þessu ári. Hann gekk til liðs við félagið árið 2018 og spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið árið 2019. Hann hefur spilað 213 leiki og skorað 14 mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.