Fotbolti.net
07.08.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Fyrsti Íslendingurinn hjá einu áhugaverðasta fótboltafélagi heims

Gísli Gotti á Millerntor stemningsvellinum.

Gísli Gotti á Millerntor stemningsvellinum.

Canon

Mynd: St. Pauli

Miðjumaðurinn Gísli Gottskálk Þórðarson var í morgun kynntur sem nýr leikmaður St. Pauli í Þýskalandi og verður fyrsti Íslendingurinn til að spila fyrir þetta merkilega félag.

Þótt bikaraskápar félagsins séu ansi tómlegir er það mjög frægt og á aðdáendur um allan heim. Stuðningsmenn liðsins eru vinstrisinnaðir og það má skilgreina það sem hipsterafélag.

Stuðningsmennirnir hafa látið til sín taka í allskyns samfélagsmálum og pólitískum baráttum. Þar á meðal gegn rasisma og verið áberandi í réttindabaráttu samkynhneigðra. Liðið hefur skapað sér vinsældir og sterkar tengingar meðal listafólks og nýtur sérstakrar hylli meðal aðdáenda pönk- og neðanjarðartónlistar.
Gísli Gotti á láni til St. Pauli (Staðfest)
TENGT EFNI

Gísli Gotti á láni til St. Pauli (Staðfest)

Sjóræningjamerki stuðningsmanna
Sjóræningjamerkið (Jolly Roger) með hauskúpu og krosslögðum beinum hefur orðið mest áberandi merki stuðningsmanna St. Pauli. Það er óformlegt tákn fyrir afstöðu gegn ríkjandi kerfi, félagslegri baráttu og þeirri sérstöðu sem einkennir stuðningsmenn. Flestir tengja St. Pauli frekar við sjóræningjamerkið en opinbera merki félagsins.

Það var á níunda áratug síðustu aldar sem félagið fór að þróast í þessa átt. Heimavöllur þess, Millerntor leikvangurinn, er rétt hjá Reeperbahn hverfinu í Hamborg þar sem freistingarnar eru á hverju strái. Þessi hluti borgarinnar er miðstöð næturlífs, bara og vafasamra skemmtistaða og þar má finna rauða hverfið í borginni.

Smám saman myndaðist óhefðbundin stuðningsmannahreyfing í kringum félagið, stemningin á heimaleikjum byggðist hratt upp og skyndilega fór völlurinn að fyllast. Félagið hefur nokkrum sinnum lent í alvarlegum fjárhagsörðugleikum en þá hafa stuðningsmennirnir tekið sig til með styrktarsöfnunum. Meðal annars með sölu á St. Pauli peysum og bolum sem hafa orðið að tískufatnaði sem sjá má um allan heim.

Í blíðu og stríðu
St. Pauli er félag sem er ólíkt öllum öðrum. Undirritaður fór í vönduðum félagsskap á heimaleik liðsins rétt fyrir jólin 2024 og það er upplifun sem aldrei gleymist.

Fyrir leik var heimsóttur bar rétt við heimavöllinn sem rekinn er af stuðningsmönnum og allur hagnaðurinn fer í eitthvað stuðningsmannatengt; eins og til dæmis borða, blys og aktívisma. Stuðningsmenn í sjálfboðavinnu eru með barinn opinn þegar þeir eru í stuði, enginn auglýstur opnunartími og inni eru allar myndatökur stranglega bannaðar (ég fékk gula spjaldið).

Á leiknum sjálfum var stemningin engu lík. Stuðningsmenn St. Pauli styðja sitt lið svo sannarlega í blíðu og stríðu. Svo lengi sem leikmenn eru að leggja sig fram þá er fólkið í stúkunni í stuði, sama hver staðan er eða gengið í deildinni. Umræddur leikur, gegn Werder Bremen, tapaðist 0-2 en aldrei dvínaði stuðið og tvívegis urðu tafir þar sem ekkert skyggni var á vellinum vegna blysa.

Einn helsti kyndilberi félagsins farinn til Japan
Gísli Gotti fer til St. Pauli á lánssamningi frá Lech Poznan en þýska félagið er með kaupákvæði í samningnum. Eftir tveggja ára veru í efstu deild féll St. Pauli á síðasta tímabili.

Eins og oft vill verða þegar lið fara niður þá eru talsverðar breytingar hjá St. Pauli. Á miðsvæðinu hefur liðið misst eitt helsta andlit félagsins síðustu ár, ástralska landsliðsmanninn Jackson Irvine sem borið hefur fyrirliðaband í regnbogalitunum undanfarin ár. Hann er horfinn á vit nýrra ævintýra hjá Osaka í Japan.

Það verður spennandi að sjá hvernig Gísla mun vegna hjá St. Pauli, meðal annars við að fylla skarð Irvine sem var í feikilega miklum metum hjá stuðningsmönnum. Ég hvet lesendur til að setja það strax á listann hjá sér að fara á leik hjá St. Pauli, ég ætla aftur.
Stuðningsmenn St. Pauli eru magnaðir.

Stuðningsmenn St. Pauli eru magnaðir.

Canon

Mynd: EPA

Fyrsti Íslendingurinn hjá einu áhugaverðasta fótboltafélagi heims
Canon

Mynd: EPA

Millerntor leikvangurinn.

Millerntor leikvangurinn.

Canon

Mynd: EPA

Fyrsti Íslendingurinn hjá einu áhugaverðasta fótboltafélagi heims
Canon

Mynd: EPA

 Jackson Irvine eftir fall St. Pauli.

Jackson Irvine eftir fall St. Pauli.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.