07.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Haukur Leifur og Valur Þór aftur í Þrótt V. (Staðfest)

Haukur Leifur er kominn aftur í Þrótt V. á láni frá HK

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Valur Þór er kominn frá Grindavík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vogamenn fengu tvo leikmenn undir lok félagaskiptagluggans en Haukur Leifur Eiríksson kom frá HK á meðan Valur Þór Hákonarson kom frá Grindavík.
Haukur er 24 ára gamall varnarmaður sem er uppalinn hjá FH en hefur leikið með HK undanfarin tvö tímabil.
Þar áður var hann í fjögur ár hjá Þrótti í Vogum og var meðal annars lykilmaður þegar liðið vann 2. deildina árið 2021. Alls hefur Haukur spilað yfir hundrað leiki fyrir Vogamenn.
Hann er nú mættur aftur í Vogana á láni frá HK út tímabilið. Haukur er kominn með leikheimild og verður klár í slaginn þegar Þróttur heimsækir Kormák/Hvöt á morgun.
Sóknarmaðurinn Valur Þór er einnig kominn til Þróttar frá Grindavík. Hann er 22 ára gamall og uppalinn hjá Keflavík en þekkir vel til í Vogunum eftir að hafa leikið þar á láni árið 2023.
Valur gekk til liðs við Grindavík fyrir tímabilið og spilaði ellefu leiki með liðinu í sumar áður en hann færði sig yfir til Þróttar. Hann lék sinn fyrsta leik undir lok júlí og fagnaði þá 3-1 sigri á Hvíta riddaranum.
Vogamenn eru í 10. sæti 2. deildar með 16 stig eftir fimmtán umferðir.