07.08.26 - 17:30
Kári Snorrason
Ótrúlegt offramboð af leikmönnum í Chelsea

Tók við Chelsea fyrr í sumar.

Mynd: EPA

41 leikmenn skráðir í aðalliðið.

Mynd: EPA

Tók við Chelsea fyrr í sumar.

Mynd: EPA
Xabi Alonso stendur frammi fyrir því verkefni að þurfa að skera verulega niður í leikmannahópi Chelsea. Alls eru 41 leikmenn skráðir í aðallið liðsins.
Félagið endaði í 10. sæti á síðustu leiktíð og mun því ekki leika í Evrópukeppni á komandi tímabili. Liðið verður því aðeins í þremur keppnum; úrvalsdeildinni, bikarnum og deildarbikarnum.
Í æfingaleik gegn Juventus á dögunum var liðið með 21 varamenn á bekknum, en aðeins fimm þeirra komu frá akademíu liðsins.

Samkvæmt reglum úrvalsdeildarinnar má hvert lið einungis vera með 25 leikmenn skráða. Undantekningar eru gerðar fyrir uppalda leikmenn og leikmenn undir 21 árs aldri, sem gerir félaginu auðveldara fyrir að skrá fleiri leikmenn.
Fimm leikmenn æfa ekki með aðalliðinu og eru falir á láni eða á varanlegum skiptum. Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Benoit Badiashile, Axel Disasi, Marc Guiu, David Datro Fofana og Caleb Wiley.
Þá er Trevoh Chalobah á leið til Como á Ítalíu og Mikhaylo Mudryk hefur verið orðaður við lán innan ensku úrvalsdeildarinnar.