Fotbolti.net
07.08.26 - 16:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tomiyasu til Crystal Palace (Staðfest)

Tomiyasu til Crystal Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Takahiro Tomiyasu er genginn í raðir enska félagsins Crystal Palace. Hann semur við félagið eftir að hafa staðið sig vel á reynslu. Hann hefur glímt við hnémeiðsli og var það ástæðan fyrir því að Palace vildi skoða hann áður en ákveðið var að bjóða honum samning.

Tomiyasu er annar leikmaðurinn sem Palace fær eftir að Pierre Sage tók við liðinu. Sá fyrsti var Oscar Mingueza.
Japanski landsliðsmaðurinn var í fjögur ár hjá Arsenal áður en hann samdi við Ajax seinni hluta síðasta tímabils.

Tomiyasu var hluti af landsliði Japans á HM og á að baki 46 landsleiki.

Hann er 27 ára varnarmaður sem er spenntur fyrir framhaldinu.

„Félagið er á góðum stað, liðið vann þrjá titla á síðasta tímabili. Ég vildi komast á þennan stað."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.