Fotbolti.net
07.09.26 - 13:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Damir tekur slaginn áfram í Grindavík þrátt fyrir fall (Staðfest)

Damir tekur slaginn áfram í Grindavík þrátt fyrir fall (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Damir Muminovic ætlar að spila áfram með Grindavík á næsta tímabili þrátt fyrir að félagið hafi fallið úr Lengjudeildinni um helgina.

Þetta staðfestir hann í samtali við Fótbolta.net.

Damir kom til Grindavíkur eftir síðasta tímabil, kom frá Breiðabliki og var lykilmaður í liði Grindavikur sem fékk á sig fimmtu fæstu mörkin í deildinni, en ekkert lið skoraði færri mörk í sumar og því varð niðurstaðan fall úr næstefstu deild og ljóst að Grindavík spilar í 2. deild á næsta ári.
Damir er 36 ára miðvörður sem varð tvisvar sinnum Íslandsmeistari á tíma sínum með Breiðabliki og var um árabil einn allra besti miðvörður efstu deildar. Hann spilaði síðasta vetur sinn sjöunda A-landsleik fyrir Ísland.

Seinna í dag verður birt viðtal við Damir hér á síðunni þar sem hann fer yfir tímabilið og útskýrir ákvörðun sína.
Damir tekur slaginn áfram í Grindavík þrátt fyrir fall (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.