07.09.26 - 12:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sóley Edda til Molde (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóley Edda Ingadóttir er gengin í raðir norska félagsins Molde frá Val. Frá þessu greinir Valur með færslu á samfélagsmiðlum í dag.
Sóley er unglingalandsliðskona, fór með U19 landsliðinu í lokakeppni EM í sumar og byrjaði alla þrjá leiki íslenska liðsins. Alls á hún að baki 35 leiki fyrir yngri landsliðin.
Varnarmaðurinn er fædd árið 2008 og kom í Val frá uppeldisfélaginu Stjörnunni fyrir tímabilið 2025.

Sóley spilaði í fyrstu 17 leikjum Vals á tímabilinu og skoraði eitt mark, en var ekki í hópnum gegn Grindavík/Njarðvík í gær þar sem hún var á förum til Noregs.
Í tilkynningu Vals segir að þriggja ára plan hefði verið lagt upp þegar Sóley kom og að hún færi svo í atvinnumennsku. Það tókst á innan við tveimur árum.
Molde situr í 7. sæti norsku deildarinnar og á næst leik gegn Hönefoss næsta sunnudag. Hjá Molde hittir Sóley fyrir fyrrum Valsarann Amöndu Andradóttur.
Úr tilkynningu Vals
Þegar Sóley samdi við Val var lagt upp með 3 ára plan um að þróa hennar leik áfram og hún færi svo í atvinnumennsku erlendis. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá þær áætlanir ganga eftir og styrkir þá stefnu félagsins að gefa ungum og upprennandi leikmönnum tækifæri, styðja þeirra þróun og hjálpa þeim að komast út í atvinnumennsku.
Gareth Owen, yfirmaður fótboltamála, hafði þetta að segja: „Við erum virkilega ánægð fyrir hönd Sóleyjar og teljum þetta frábært tækifæri fyrir hana. Sóley hefur staðið sig mjög vel hjá Val og þroskast mikið undanfarin 2 ár og á þetta sannarlega skilið. Til hamingju Sóley og gangi þér vel!"