Fotbolti.net
07.10.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Ailton til Schalke á næsta tímabili. (Staðfest)

Ailton í baráttunni.

Ailton í baráttunni.

Canon
Schalke tilkynnti í dag að Brasilíski sóknarmaðurinn Ailton mun leika með liðinu á næstu leiktíð í Bundesligunni. Ailton sem leikur með Werder Bremen hefur byrjað vel á þessari leiktíð og skorað 7 kvikindi í 8 leikjum. Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir Bremen sem er í 2.sæti í Bundesligunni en nú gæti komið mikill óróleiki innan liðsins við þessi tíðindi. Ailton kemur frítt til Schalke þar sem að samningur hans rennur út í vor. Hann er þó ekki eini maðurinn sem fer frá Bremen til Schalke því að varnarmaðurinn Mladen Krstajic mun einnig fara sömu leið og Ailton.
Schalke er að leita að framherja til að leysa Emilie Mpenza af en Mpenza fór í sumar frá félaginu. Ailton ætti að geta leyst þetta hlutverk því að hann hefur skorað 67 mörk í 144 leikjum með Werder Bremen síðan að hann kom til félagsins árið 1998.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.