Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 07. október 2022 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Auba hlustar ekki á umræður um treyju númer níu
Aubameyang tók sitt 'signature' fagn
Aubameyang tók sitt 'signature' fagn
Mynd: EPA

Pierre Emerick Aubameyang skoraði sitt fyrsta mark í búningi Chelsea um síðustu helgi í sínum fyrsta deildarleik fyrir félagið. Hann skoraði aftur í vikunni í Meistaradeildinni í 3-0 sigri á AC Milan.


Þessi fyrrum leikmaður Arsenal gekk til liðs við Chelsea frá Barcelona í sumar en hann spilar í treyju númer níu hjá Lundúnarliðinu.

Það hefur skapast umræða um að það séu álög á treyju númer níu hjá félaginu en margir sem hafa klæðst þessari treyju hjá Chelsea hafa ekki staðið undir væntingum.

Aubameyang er ekkert að spá í því.

„Ég veit það ekki, ég hlusta ekki á svona. Ég elska níuna svo ég tók hana. Ég er ánægður með það og vonandi skora ég fleiri mörk," sagði Aubameyang.


Athugasemdir
banner
banner