07.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Carvajal á leið til Getafe

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski bakvörðurinn Dani Carvajal er búinn að finna sér nýtt lið, en hann er að ganga í raðir Getafe í La Liga á Spáni.
Hinn 34 ára gamli Carvajal fór frá Real Madrid þegar samningur hans rann út í sumar. Hann er uppalinn hjá félaginu og vann 26 titla á þrettán árum með aðalliðinu.
Samkvæmt MARCA bendir nú flest til þess að hann verði áfram í Madríd en hann hefur náð samkomulagi við Getafe. Beðið er eftir samþykki spænsku deildarinnar á fjárhagslegum skilmálum samningsins og fáist það verður hann kynntur sem nýr leikmaður félagsins.
Jose Bordalas, þjálfari Getafe, átti stærstan þátt í að sannfæra Carvajal sem var mikið í mun að búa áfram í Madríd.
Það yrði mikill liðsstyrkur fyrir Getafe að fá Carvajal sem var meðal annars í lykilhlutverki þegar Spánverjar urðu Evrópumeistarar fyrir tveimur árum.