07.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
„Ekki trúa öllu sem þið lesið í fjölmiðlum“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Rayan Cherki, leikmaður Manchester City og franska landsliðsins, hefur blásið á orðróm um að honum og Michael Olise komi illa saman.
Franskir miðlar höfðu greint frá því að samband Olise og Cherki væri stirt og andrúmsloftið í landsliðshópnum slæmt.
Annað var þó að sjá í upphitun fyrir leikinn gegn Belgíu þar sem þeir léku sér saman með boltann og virtust hinir mestu mátar. Olise skoraði síðan tvö mörk og lagði upp eitt í leiknum og að honum loknum varaði Cherki við því að trúa öllu sem birtist í fjölmiðlum.
„Við Michael Olise erum mjög góðir vinir og það er ekkert uppspil. Ekki trúa öllu sem þið lesið í fjölmiðlum,“ sagði Cherki við TF1.
„Við erum ótrúlega samheldinn hópur og ég hef sjaldan séð jafn mikla samstöðu í leikmannahópi. Það eru allir á sömu blaðsíðu, frá fyrsta manni til hins síðasta, og það sama á við um þjálfarateymið. Þetta er stórkostlegt og maður finnur fyrir því á vellinum,“ sagði hann.

Rayan Cherki et Michael Olise s’amusent bien ensemble ??????????????? #FRABEL
— Dounia Mesli (@Mesli_Dounia) October 5, 2026
???? @preums_football https://t.co/kfmVOeyArC