07.10.26 - 08:36
Elvar Geir Magnússon
Hinn bandarísk-íslenski Cole Campbell lék sinn fyrsta landsleik

Cole Campbell brosandi rétt áður en hann kom af bekknum.

Mynd: X

Hinn bandarísk-íslenski Cole Campbell kom inn sem varamaður á 61. mínútu fyrir Bandaríkin í 1-0 sigri á Kanada í vináttulandsleik. Þetta var fyrsti A-landsleikur hans en hann lék á sínum tíma með U17 landsliði Íslands.
Þessi tvítugi kantmaður lék áður með Breiðabliki og FH hér heima, en á íslenska móður og bandarískan föður.
Cole Campbell spilar nú fyrir Elversberg í þýsku Bundesligunni en hann var í herbúðum Borussia Dortmund og er talið að Dortmund sé með klásúlu um að geta keypt hann til baka. Hann hefur skorað eitt mark í fjórum deildarleikjum með Elversberg á tímabilinu.
Eftir leikinn gegn Kanada sagðist Cole Campbell að draumur hefði ræst með því að spila sinn fyrsta leik fyrir þjóð sína.
Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, hefur notað þennan glugga í að gefa mörgum ungum leikmönnum tækifæri. Þar á meðal er Justin Ellis sem skoraði eina markið í sigrinum gegn Kanada.

The First Cap for Cole Campbell! ?? https://t.co/pFGgf7Ldh7
— U.S. Soccer Men's National Team (@USMNT) October 7, 2026

Í leik með Elversberg.

Mynd: EPA