Egill Jónsson, fyrrverandi leikmaður KR og Víkings Ó. í efstu deild, sendi á dögunum frá sér plötuna Nætur sem annar helmingur tvíeykisins LØV & LJÓN. Hinn helmingur þess er Einar Lövdahl sem skráði bókina Aron – sagan mín, ævisögu landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar sem kom út fyrir síðustu jól.
Platan er komin á Spotify og hana má nálgast hér.
Egill, sem á að baki 119 meistaraflokksleiki með KR, Víkingi Ó. og Selfossi, fagnaði tvennunni með KR 2011 og bikarmeistaratitli 2014. Tveir fyrrum liðsfélagar hans úr KR, þeir Atli Sigurjónsson og Skúli Jón Friðgeirsson, fóru fögrum orðum um plötuna á Twitter í vikunni og er því ekki annað að sjá en að KR-ingar standi saman allir sem einn, eins og segir í laginu ódauðlega.
Tek undir þetta. En legg til að þetta upptekna fólk taki líka lag nr.3 Svífum sem er að gera mikið fyrir mig, eftir það mun fólkið gleyma því að það var upptekið og klára plötuna
— SkúliJónFriðgeirsson (@skulijon) December 6, 2019
Athugasemdir