Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 08. janúar 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
AC Milan vill fá Christensen
Mynd: Getty Images
AC Milan vill fá Andreas Christensen, varnarmann Chelsea, í sínar raðir samkvæmt frétt Sky á Ítalíu.

AC Milan er í leit að varnarmanni og vildi fá Jean-Clair Todibo frá Barcelona en hann er líklega á leið til Schalke.

Hinn 23 ára gamli Christensen kemur því til greina en hann er ekki ofarlega í röðinni hjá Frank Lampard stjóra Chelsea.

Christensen hefur ekkert spilað í ensku úrvalsdeildinni síðan í byrjun desember og AC Milan ætlar nú að freista þess að fá hann á láni með möguleika á kaupum næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner