21.09.26 - 14:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Formaður Fylkis: Heilmikið sem þarf að skoða á næstu dögum

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir er með áframhaldandi samning.

Fylkir tapaði í úrslitaleik Lengjudeildarumspilsins á laugardag og verður því í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Þróttur skoraði eina mark leiksins og fer upp í Bestu deildina.
Fótbolti.net ræddi við Ragnar Pál Bjarnason sem er formaður fótboltadeildar Fylkis sem ber sig vel þrátt fyrir tapið.

Hvernig lítur út með Heimi Guðjónsson þjálfara, eruð þið bjartsýnir á að halda honum?
„Já, við erum það," segir formaðurinn. Í samningnum stendur ekkert um ákveðinn glugga sem félag eða þjálfari hefur eftir tímabilið en formaðurinn segir að samtalið við Heimi verði tekið eins og venjan sé eftir hvert tímabil.
Er eitthvað orðið ljóst varðandi leikmannamál? Augun stoppa fljótt við nafn Guðmundar Tyrfingssonar sem átti gott tímabil og er að verða samningslaus. Er það vitað á þessum tímapunkti að hann fer annað?
„Nei, það er ekkert orðið ljóst. Það er ljóst að það er heilmikið sem þarf að skoða á næstu dögum og við munum reyna gera það hratt og örugglega. Það er vinna framundan, en það er engan bilbug á okkur að finna."
Í sumar var fjallað um ársreikninga félaganna (1) og var yfirskriftin að Fylkir væri í miklu brasi (2). Það að Fylkir fer ekki upp, er ljóst að það þarf að skera niður?
„Þetta hefur áhrif á fjárhaginn til framtíðar. Ég er ekki alveg sammála þeim fréttum að fjárhagurinn hafi verið slæmur því við höfum alltaf náð að borga öllum sem er meira en mörg önnur félög sem eiga að hafa það gott geta sagt. Við berum okkur bara vel, höfum verið skynsamir."
„Það er ekki búið að taka neina ákvörðun um niðurskurð, alls ekki. En auðvitað verður kannski ekki blásið til sóknar. Það hefur ekki verið ákveðið að breyta strúktúr eða fara í annað módel. Við ætlum að halda áfram og gera aðra atrennu, það er ljóst. Við ætlum ekki að dvelja þarna, það er ekki markmiðið," segir Ragnar Páll að lokum.