Fotbolti.net
21.09.26 - 14:34
Elvar Geir Magnússon

Stórhrifinn af því sem Maresca hefur gert með City

Enzo Maresca tók við Manchester City af Pep Guardiola.

Enzo Maresca tók við Manchester City af Pep Guardiola.

Canon

Mynd: EPA

Andy Dunn, íþróttafréttamaður Mirror, er stórhrifinn af byrjun Enzo Maresca í stjórastólnum hjá Manchester City.

Nú þegar landsleikjahlé er gengið í garð er City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fullt hús, þremur stigum meira en ríkjandi meistarar Arsenal.
„Gagnrýnendur sögðu að Enzo Maresca myndi spila frekar varfærnislega. Þeir sögðu að öryggið yrði í fyrsta sæti. Þeir sögðu að leikmenn eins og Rodri og Bernardo Silva væru ómissandi. Þeir sögðu einnig að það væri ómögulegt að fylgja á eftir Pep Guardiola," segir Dunn.

„Það síðastnefnda er augljóslega satt en fólkið sem stýrir Manchester City hafa lagt þetta upp þannig að Maresca hefur fengið öll verkfæri til að halda áfram starfi Pep."

„Sóknarleikur Maresca er stórskemmtilegur. Cherki, Foden, Doku, Semenyo, Ndiaye, allir að skapa fyrir Haaland. Anderson verður gríðarlega góður fyrir þá. Varnarlega líta þeir út fyrir að vera viðkvæmir en það hefur verið raunin í einhvern tíma. Skemmtanagildið er gríðarlega hátt og gaman að horfa á þá spila."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.