Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 08. janúar 2021 22:06
Aksentije Milisic
Milner: Einn þeirra sagðist ekki hafa spilað leik í tvo mánuði
Dominic Revan og James Milner.
Dominic Revan og James Milner.
Mynd: Getty Images
James Milner, leikmaður Liverpool, hrósaði ungu liði Aston Villa eftir leikinn í kvöld.

Liverpool mætti unglingaliði Aston Villa en aðalliðið er í sóttkví eftir að margir reyndust smitaðir af kóróna veirunni. Fjórir leikmenn sem spiluðu fyrir Villa í kvöld voru ekki fæddir þegar Milner spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik.

„Þetta er góður hópur af strákum. Þeir lögðu mikla vinnu í leikinn. Þeir skoruðu mark í fyrri hálfleiknum sem hélt þeim inn í leiknum," sagði Milner.

„Við náðum að klára verkefnið fyrir rest en þetta er ekki sérstök staða fyrir okkar lið. Það sem vantaði svolítið hjá okkur er þessi síðasta sending til þess að skapa færi og það hefur verið okkar hausverkur undanfarið."

„Einn leikmaðurinn hjá þeim sagðist ekki hafa spilað leik í tvo mánuði. Við verðum að gera betur og þá sérstaklega í markinu sem þeir skoruðu."

Næsti leikur Liverpool er gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool er á toppi deildarinnar með jafn mörg stig og United. United á hins vegar einn leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner