Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 08. janúar 2022 06:00
Victor Pálsson
Líkur á að Bale hætti í sumar
Gareth Bale, leikmaður Real Madrid, gæti lagt skóna á hilluna í sumar eða samið við félag í heimalandinu Wales.

Sky Sports talar um þetta mál en það veltur mikið á hvort Wales komist á fyrstu lokakeppni HM í fyrsta sinn í 64 ár.

Wales spilar umspilsleik við Austurríki í mars og ef hann vinnst þá leikur liðið úrslitaleik við annað hvort Skotland eða Úkraínu um laust sæti á HM.

Bale mun ekki leika með Real á næstu leiktíð en mun íhuga að gera stuttan samning við lið í úrvalsdeildinni eða Championship-deildinni ef Wales kemst á HM.

Ef Wales kemst ekki á HM eru líkur á að skórnir fari upp í hillu eða þá gæti þessi 33 ára gamli leikmaður leikið fyrir Cardiff eða Swansea.
Athugasemdir
banner
banner