Georginio Wijnaldum, leikmaður Paris Saint-Germain, vill snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.
Sky Sports greinir frá þessum fregnum en Wijnaldum hefur leikið í Frakklandi í stuttan tíma eftir að hafa komið í sumar.
Wijnaldum er hollenskur landsliðsmaður en hann var áður hjá Liverpool og vann þar Meistaradeildina.
Tækifærin hafa verið af skornum skammti í Frakklandi og vill miðjumaðurinn því snúa aftur til Englands.
Fjölmörg lið myndu hafa áhuga á að næla í Wijnaldum sem vill halda sæti sínu í hollenska landsliðinu.
Athugasemdir