Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 08. febrúar 2021 16:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Böðvar á förum frá Póllandi?
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Vinstri bakvörðurinn Böðvar Böðvarsson gæti verið á förum frá Jagiellonia Białystok í Póllandi á næstu dögum. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net gæti er unnið að því að ná samkomulagi milli Böðvars og félagsins um starfslokasamning en samningur hans á að renna út í sumar.

Böðvar fór frá FH til Jagiellonia Białystok árið 2018 en hann er nú líklega á förum.

Á þessu tímabili hefur Böðvar spilað þrettán leiki en hann ekki komið við sögu eftir jólafrí.

Hinn 25 ára gamli Böðvar hefur samtals spilað 43 leiki í pólsku úrvalsdeildinni á ferli sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner