Ítalska félagið Napoli er að fá kólumbíska miðjumanninn Richard Rios frá Benfica fyrir 35 milljónir evra. Portúgalski miðillinn Sapo segir frá þessum tíðindum.
Ríos, sem var lengi vel á ratsjá Manchester United, gekk í raðir Benfica á síðasta ári.
Hann hefur spilað stórt hlutverk í liði Benfica en er nú sagður reiðubúinn að taka næsta skref á ferlinum.
Sapo segir að Napoli sé í viðræðum við Benfica um kaup á Ríos og að stutt sé í samkomulag.
Þar kemur fram að Benfica vilji fá 40 milljónir evra fyrir leikmanninn en Napoli sé aðeins reiðubúið að borga 35 milljónir. Talið er að samkomulag geti náðst á næstu vikum.
Ríos, sem er 26 ára gamall, var hluti af kólumbíska landsliðinu sem hafnaði í öðru sæti á Copa America árið 2024. Hann er einnig í landsliðshópnum sem tekur þátt á HM í sumar.


