Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   mán 08. júní 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Juventus rennir hýru auga til Pickford
Mynd: EPA
Ítalska félagið Juventus er að skoða það að fá enska landsliðsmarkvörðinn Jordan Pickford frá Everton. Þetta segir ítalski blaðamaðurinn Nicolo Schira.

Pickford, sem er 32 ára gamall, hefur verið aðalmarkvörður Everton frá árinu 2017.

Á þeim tíma hefur hann vaxið og dafnað í hlutverki sínu og verið aðalmarkvörður enska landsliðsins frá heimsmeistaramótinu 2018.

Nicolò Schira segir að Juventus hafi áhuga á að fá Pickford í sumarglugganum.

Michele Di Gregorio hefur staðið á milli stanganna hjá Juventus síðan hann kom frá Monza fyrir tveimur árum, en hann gæti verið á förum frá félaginu á næstu vikum.

Umboðsmenn Pickford hafa verið í sambandi við Juventus undanfarna daga, en ekkert samkomulag er í höfn.

Síðan Pickford kom til Everton hefur hann fjórum sinnum verið valinn leikmaður tímabilsins hjá félaginu.
Slapp
banner
banner