Fotbolti.net
28.06.26 - 11:25
Brynjar Ingi Erluson

Aldrei fleiri Afríkuþjóðir komist áfram

Yoane Wissa fagnar með stuðningsmönnum Kongó

Yoane Wissa fagnar með stuðningsmönnum Kongó

Canon

Mynd: EPA

Níu Afríkuþjóðir eru komnar í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins og aldrei áður hefur álfan átt jafn marga fulltrúa í útsláttarkeppni HM.
Suður-Afríka kom öllum á óvart og tók annað sæti A-riðils á meðan Marokkó komst áfram úr C-riðli. Marokkó er ein sterkasta Afríkuþjóðin um þessar mundir og ríkjandi Afríkumeistari.

Marokkó fór alla leið í undanúrslit á HM í Katar árið 2022 og það kæmi fáum á óvart ef liðið færi langt á mótinu í ár.

Fílabeinsströndin fór áfram úr E-riðli eftir að hafa unnið tvo leiki og tryggt sér sæti í 32-liða úrslitum með öruggum hætti. Egyptaland hafnaði í öðru sæti G-riðils en Mohamed Salah og félagar misstu af toppsætinu á markatölu.

Grænhöfðaeyjar eru líklega óvæntasta þjóðin í 32-liða úrslitunum. Liðið tapaði ekki leik í riðlakeppninni og þrjú jafntefli dugðu til að tryggja annað sætið í H-riðli. Nú bíður þeirra erfiðasta verkefnið til þessa þegar þeir mæta heimsmeisturum Argentínu.

Senegal verður ein af átta þjóðum sem komust áfram með bestan árangur í 3. sæti eftir 5-0 stórsigur á Írak í I-riðli.

Alsír, Kongó og Gana voru einnig meðal bestu þjóða í 3. sæti og fara því öll áfram í 32-liða úrslitin.

Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem níu Afríkuþjóðir komast í útsláttarkeppni heimsmeistaramótsins. Það er í raun ótrúlegt að níu af tíu Afríkuþjóðum mótsins hafi komist áfram en Túnis var eina liðið frá álfunni sem féll úr leik í riðlakeppninni.

Afríka átti tvo fulltrúa í útsláttarkeppni HM árið 2014, Alsír og Nígeríu, og var það þá besti árangur álfunnar hvað fjölda liða í útsláttarkeppni varðar.

Frammistaða Marokkó í Katar er enn besti árangur Afríkuþjóðar í sögu heimsmeistaramótsins. Marokkó komst þar í undanúrslit en tapaði fyrir Frökkum. Áður höfðu þrjár Afríkuþjóðir komist í 8-liða úrslit: Kamerún árið 1990, Senegal árið 2002 og Gana árið 2010.

Marokkó komst í undanúrslit árið 2022

Marokkó komst í undanúrslit árið 2022

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.