Fotbolti.net
08.07.04 - 13:18
Magnús Már Einarsson

Viduka kominn til Middlesbrough (Staðfest)

Viduka kominn til Middlesbrough (Staðfest)
Canon
Middlesbrough kynnti í dag ástralska framherjann Mark Viduka sem nýjan leikmann liðsins en hann kemur frá Leeds United á 4,5 milljónir punda. Viduka sem að er 28 ára skoraði ellefu mörk fyrir Leeds United á síðustu leiktíð en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við Boro.
Viduka sagði við komuna að Middlesbrough hefði alla burði til að reyna að ná Meistaradeildarsæti á næstu leiktíð.

Keith Lamb stjórnarformaður Boro var að sjálfsögðu ánægður með kaupin á Viduka en Middlesbrough hefur ekki átt framherja sem að skorar um 20 mörk á tímabili síðan að Fabrizio Ravanelli yfirgaf liðið fyrir nokkrum árum.

Lamb sagði að Middlesbrough séu ekki hættir á leikmannamarkaðnum en auk Viduka fékk liðið hollenska varnarmanninn Michael Reiziger fyrir skömmu. Lamb sagðist ekki vera undrandi þó að nýr leikmaður kæmi á næstu dögum en liðið hefur verið orðað við Aiyegbeni Yakubu, Patrick Kluivert og Jimmy-Floyd Hasselbaink.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.