Fotbolti.net
08.07.26 - 13:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Arbeloa vill fá leikmenn með sér frá Real

Arbeloa vill fá leikmenn með sér frá Real
Canon

Mynd: EPA

Alvaro Arbeloa, nýr stjóri Fulham, vill fá Gonzalo Garcia frá Real Madrid til enska félagsins. Frá þessu greinir Sky Sports.
Garcia er framherji og Fulham er í leit að slíkum eftir að ákveðið var að endursemja ekki við Raul Jimenez.

Garcia skoraði sex mörk á síðasta tímabili og spilaði meira hjá Real eftir að Arbeloa tók við stjórnartaumunum í kjölfarið á brottrekstri Xabi Alonso. Garcia hefur spilað 35 leiki í La Liga en hann þreytti fraumraun sína árið 2023.

Hann er 22 ára og er hjá sömu umboðsskrifstofu og Arbeloa sem var kynntur sem nýr stjóri Fulham í gær.

Fulham vill fá inn framherja, vængmenn og miðjumann. Arbeloa er sagður horfa til fleiri leikmanna hjá Real. Fran Garcia og Franco Mastantuono eru einnig orðaðir við Fulham.

Tveir leikmenn Fulham eru orðaðir við stærri félög. Það eru þeir Sander Berge, sem er á blaði Manchester United, og bakvörðurinn Antonee Robinson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.