Fotbolti.net
08.07.26 - 12:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hlynur Freyr í Breiðablik á láni (Staðfest)

Mættur aftur í uppeldisfélagið

Mættur aftur í uppeldisfélagið

Canon

Mynd: Breiðablik

Hlynur Freyr Karlsson er genginn í raðir Breiðabliks frá sænska félaginu Brommapojkarna á láni út tímabilið. Hlynur er uppalinn hjá Breiðabliki og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik á ferlinum með Blikum árið 2020, þá aðeins 16 ára gamall.

Hlynur er fæddur árið 2004, er U21 landsliðsmaður og getur leyst stöður í varnarlínunni og sem varnarsinnaður miðjumaður.

Árið 2020 var hann seldur til Bologna á Ítalíu en fyrir tímabilið 2023 sneri hann aftur til Íslands og samdi við Val hvar hann spilaði mjög vel og var í kjölfarið keyptur til Haugesund í Noregi. Sumarið 2024 keypti Brommapojkarna hann svo af norska félaginu.
Hlynur Freyr á leið í Breiðablik á láni
TENGT EFNI

Hlynur Freyr á leið í Breiðablik á láni

Hlynur á einn A-landsleik fyrir Íslands hönd auk þess sem hann hefur leikið 39 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Hlynur hefur einungis komið við sögu í einum leik í sænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hlynur fær leikheimild hjá Breiðabliki eftir leikinn gegn Keflavík. Hans fyrsti leikur gæti því verið gegn FH sem fram fer á Kaplakrikavelli 20. júlí.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.