Fotbolti.net
08.07.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Klose fékk símtal frá Messi - „Mjög hjartnæmt"

Klose fékk símtal frá Messi - „Mjög hjartnæmt"
Canon

Mynd: EPA

Hinn 39 ára gamli Lionel Messi hefur farið hamförum á HM í sumar en hann er búinn að skora átta mörk í sex leikjum. Hann skoraði auk þess að leggja upp sitt fyrsta mark í dramatískum sigri á Egyptalandi í 16-liða úrslitum í gær.

Messi hefur stórbætt met Þjóðverjans Miroslav Klose, sem skoraði 16 mörk á HM ferlinum. Messi skoraði þrennu í fyrsta leiknum gegn Alsír og jafnaði metið. Hann er nú búinn að skora 21 mark á heimsmeistaramóti.
Klose segir frá því að Messi hafi hringt í sig eftir að sá síðarnefndi jafnaði metið.

„Messi er ótrúlegt fyrirbæri. Lionel Scaloni (landsliðsþjálfari Argentín) var liðsfélagi minn hjá Lazio, við heyrumst reglulega. Hann græjaði símtal milli okkar Messi eftir að hann jafnaði markametið mitt á HM. Það var mjög hjartnæmt," sagði Klose.
Miroslav Klose

Miroslav Klose

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.