Fotbolti.net
08.07.26 - 15:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Santos færist nær Man Utd - Chelsea vill 50 milljónir

Santos færist nær Man Utd - Chelsea vill 50 milljónir
Canon

Mynd: EPA

Andrey Santos, leikmaður Chelsea, er að færast nær Manchester United ef marka má Daily Mail.

Blaðamaðurinn Mike Keegan segir að það sé trú á því að skiptin geti gengið í gegn og viðræður séu í gangi á milli félaganna.

Santos er 22 ára miðjumaður sem Chelsea keypti frá Vasco da Gama árið 2023, hann hefur leikið 47 leiki og skorað þrjú mörk fyrir Chelsea en hann hefur verið lánaður til bæði Nottingham Forest og Strasbourg.
Chelsea er sagt vilja fá 50 milljónir punda fyrir Brasilíumanninn sem á að baki sex landsleiki.

Manchester United gæti því verið að kaupa tvo brasilíska miðjumenn í sumar því Ederson er á leiðinni frá Atalanta, hann á einungis eftir að standast læknisskoðun áður en þau skipti geta gengið í gegn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.