Sneri aftur í hóp Víkings einu ári og tveimur aðgerðum síðar

Mættur aftur í hóp Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Glímt við íþróttakviðslit.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valinn efnilegasti leikmaður mótsins í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur aftur í hóp Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daði Berg Jónsson sneri aftur í leikmannahóp Víkings í gær eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í tæpt ár.
Hann hefur ekki spilað meistaraflokksleik síðan 12. júlí í fyrra. Daði fór í tvær aðgerðir í vetur vegna meiðslanna eftir að hafa glímt við íþróttakviðslit.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var spurður út í endurkomu Daða eftir 1-0 sigur Víkings á ungverska liðinu Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar í gær.

TENGT EFNI
Daði Berg á leið í aðra aðgerð - Frestaðist út af EM í handbolta
„Það er frábært fyrir okkur og hann. Þetta hefur verið mjög erfitt fyrir hann, leiðinleg meiðsli. Við vissum aldrei hvað væri langur tími í hann og það eru alltaf leiðinlegustu meiðslin.“
„Það er gaman að sjá hann aftur á æfingasvæðinu byrjaðan að sparka í boltann. Maður sér að gæðin eru klárlega til staðar. Okkur hlakkar til að sjá hann inni á vellinum aftur,“ segir Sölvi.
Engin umræða um lán
Daði var valinn efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins af Fótbolta.net í fyrra fyrir framgöngu sína með Vestra fyrri hluta móts.
Víkingar tóku ákvörðun um að kalla hann til baka frá láni í sumarglugganum, en hann náði ekki að spila með Víkingum sökum meiðslanna.
Sölvi var spurður hvort Daði færi út á láni í komandi glugga. „Það er ekkert komið í umræðuna. Hann verður hjá okkur núna og kemur sér í betra og betra stand. Já, ég sé hlutverk fyrir hann.“