Daði Berg Jónsson, leikmaður Víkingur, er á leið í aðgerð vegna kviðslita og er búist við að hann verði frá í nokkra mánuði. Þungavigtin greindi fyrst frá fyrirhugaðri aðgerð Daða.
Daði lék á láni með Vestra fyrri hluta tímabils og var kallaður til baka til Víkings um mitt sumar. Hann spilaði þó ekki leik með Víkingum sökum meiðslanna og fór hann út til Danmerkur í aðgerð í haust.
Í samtali við Fótbolta.net síðasta haust lýsti Daði meiðslunum sem íþróttakviðslitum, þar sem kviðurinn sé ekki slitinn heldur bólgur í kring og rifa í vöðvanum.

Fótbolti.net ræddi við Kára Árnason yfirmann fótboltamála Víkings og spurði út í væntanlega aðgerð Daða:
„Hann hefur æft en hann er verkjaður. Hann þarf að fara í þessa aðgerð og verður vonandi bara frá í einn, tvo mánuði en gæti verið upp undir þrjá. Þetta eru leiðinlegar fréttir fyrir hann og okkur.
Maðurinn sem ætlaði að framkvæma aðgerðina var úti með handboltalandsliðinu, þannig að Daði hefur ekki enn komist í hana. Það er fresturinn annars væri hann búinn í aðgerðinni,“ segir Kári.
Daði er nítján ára sóknarmaður og var hann valinn efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili að mati Fótbolta.net fyrir framgöngu sína með Vestra fyrri hluta móts. Hann á að baki 10 leiki með U19 og hefur skorað í þeim þrjú mörk.
Athugasemdir