Fotbolti.net
08.08.23 - 11:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Micky van de Ven í Tottenham (Staðfest)

Micky van de Ven er mættur í Tottenham.

Micky van de Ven er mættur í Tottenham.

Canon

Mynd: Tottenham

Tottenham er búið að gefa það út að félagið hafi gengið frá kaupum á varnarmanninum Micky van de Ven.

Það er talið að kaupverðið verði allt að 50 milljónir evra fyrir þennan 22 ára gamla hollenska miðvörð. Hann skrifar undir samning við Tottenham sem gildir til 2029 og mun klæðast treyju númer 37 hjá félaginu.
Van de Ven steig sín fyrstu skref í Volendam í Hollandi og fór svo til Wolfsburg árið 2021.

Hann spilaði á síðustu leiktíð 33 leiki í þýsku úrvalsdeildinni með Wolfsburg og skoraði eitt mark.

Van de Ven var hluti af hollenska U21 landsliðinu sem tók þátt á Evrópumótinu fyrr í sumar en hann bíður enn eftir því að leika sinn fyrsta A-landsleik fyrir þjóð sína.

<b>Enski boltinn</b> - Aldrei venjuleg vika hjá Tottenham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.