Fotbolti.net
08.08.26 - 11:18
Brynjar Ingi Erluson

Bruno Guimaraes til Arsenal (Staðfest)

Bruno Guimaraes til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Arsenal

Arsenal hefur staðfest komu brasilíska miðjumannsins Bruno Guimaraes en hann kemur til félagsins frá Newcastle United fyrir 75 milljónir punda og skrifar undir fjögurra ára samning.
Guimaraes er 28 ára gamall og hefur leikið með Newcastle undanfarin fjögur ár.

Hann tók við fyrirliðabandinu fyrir tveimur árum og leiddi liðið til fyrsta stóra titils þess í 70 ár þegar Newcastle vann enska deildabikarinn á síðasta ári.

Brasilíumaðurinn tjáði stjórn Newcastle eftir tímabilið að hann vildi taka næsta skref á ferlinum og eftir langar viðræður náðu Englandsmeistararnir síðan samkomulagi við félagið um kaupverð.

Guimaraes skrifaði undir fjögurra ára samning í dag með möguleika á eins árs framlengingu.

Hann mun klæðast treyju númer 39 hjá Arsenal.

Miðjumaðurinn hóf feril sinn hjá Audax í Brasilíu, en spilaði einnig með Athletico Paranaense og síðar Lyon í Frakklandi. Hann á 48 A-landsleiki og þrjú mörk fyrir Brasilíu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.