08.08.26 - 12:54
Brynjar Ingi Erluson
Brynjar Ingi keyptur til Danmerkur (Staðfest)

Mynd: SönderjyskE

Mynd: SönderjyskE
Miðvörðurinn Brynjar Ingi Bjarnason er genginn í raðir danska úrvalsdeildarfélagsins SönderjyskE frá þýska B-deildarfélaginu Greuther Fürth.
Brynjar er 26 ára gamall og uppalinn hjá KA. Hann fór á kostum sumarið 2021 og vann sér í kjölfarið sæti í íslenska A-landsliðinu þar sem hann vakti strax athygli.
Hann tók mörg stór skref á skömmum tíma en fékk fá tækifæri hjá Lecce á Ítalíu. Brynjar fór síðar til Valerenga í Noregi og lék þaðan með HamKam.
Á síðasta ári samdi hann við Greuther Fürth í þýsku B-deildinni en er nú kominn til SönderjyskE í Danmörku. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.
„Ég er ótrúlega ánægður með að hafa skrifað undir hjá SönderjyskE. Þetta er félag sem þarf ekki að kynna sérstaklega fyrir mér. Hér er rík saga af íslenskum leikmönnum og ég þekkti því félagið vel þegar áhuginn kom upp,“ sagði Brynjar.
Íslensku landsliðsmennirnir Daníel Leó Grétarsson og Rúnar Þór Sigurgeirsson eru einnig á mála hjá SönderjyskE. Fjöldi Íslendinga hefur leikið með félaginu í gegnum tíðina en Brynjar verður sá sextándi.
„Ég þekki Daníel Leó og Rúnar Þór í gegnum landsliðið. Þá þekki ég einnig fleiri leikmenn sem hafa verið hér, eins og Kristal Mána Ingason og Sölva Geir Ottesen.“
Ég hef aðeins heyrt góða hluti um SönderjyskE í gegnum árin og það gleður mig mikið að vera orðinn hluti af félaginu,“ sagði hann.
Brynjar gæti leikið sinn fyrsta leik þegar SönderjyskE mætir Brondby 17. ágúst.
„Ég hlakka til að hefjast handa og hitta nýju liðsfélagana og stuðningsmennina. Ég er ánægður með að allt sé komið í höfn og mun gera mitt allra besta til að hjálpa liðinu,“ sagði Brynjar við heimasíðu félagsins.
Miðvörðurinn á 17 landsleiki að baki með A-landsliðinu og skorað tvö mörk, gegn Póllandi og Norður-Makedóníu.

Sønderjyske Fodbold styrker det centrale forsvar med tilgangen af den islandske landsholdsspiller Brynjar Ingi Bjarnason, der har skrevet en treårig kontrakt ??????????
— Sønderjyske Fodbold (@SJFodbold) August 8, 2026
Læs nyheden på https://t.co/QxsjxTzxQi ???? pic.twitter.com/B4AMxpNDMs