08.08.26 - 14:24
Brynjar Ingi Erluson
Faðir Messi er látinn eftir langvarandi veikindi

Lionel og Jorge Messi saman á góðri stund

Mynd: Af netinu

Jorge Messi, faðir og umboðsmaður argentínska fótboltamannsins Lionel Messi, er látinn 68 ára að aldri eftir langvarandi veikindi.
Jorge studdi son sinn í einu og öllu frá fyrstu tíð og átti stóran þátt í því að koma honum til Barcelona árið 2000, þegar Messi var aðeins 13 ára gamall. Hann var síðan einn nánasti ráðgjafi sonar síns allan ferilinn.
Í sumar bárust fréttir af því að Jorge glímdi við alvarleg veikindi. Messi brast í grát eftir að hafa skorað þrennu gegn Alsír í fyrsta leik Argentínu á heimsmeistaramótinu og Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, grét með honum. Eftir leikinn sagði Messi að undanfarnar vikur hefðu verið honum erfiðar.
Jorge er nú látinn, 68 ára að aldri, eftir langvarandi veikindi. Fjölskyldan staðfesti andlátið við Reuters en hann lést á sjúkrahúsi í Rosario, heimaborg fjölskyldunnar.
Jorge hélt sig yfirleitt til hlés og sóttist ekki eftir sviðsljósinu. Áhrif hans á feril eins besta fótboltamanns sögunnar voru þó gríðarleg og verður hans minnst sem mannsins sem studdi Messi í gegnum súrt og sætt.
Newell's Old Boys, uppeldisfélag Messi, sendi frá sér yfirlýsingu þar sem Jorge var kvaddur og honum þakkað fyrir allt.

El Club Atlético Newell's Old Boys despide con profundo dolor y pesar a Jorge Messi, quien falleció a los 68 años de edad en la ciudad de Rosario.
— Newell’s Old Boys (@Newells) August 8, 2026
Reconocido hincha leproso, empresario y padre del capitán del seleccionado argentino, Lionel Andrés Messi.
Jorge fue el sostén y la… pic.twitter.com/8dFPMRdM9Z