08.08.26 - 11:46
Brynjar Ingi Erluson
Frá Fulham til nýliðanna (Staðfest)

Mynd: Ipswich Town

Mynd: Ipswich Town
Nýliðar Ipswich Town hafa styrkt sig fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni, en Sasa Lukic er kominn frá Fulham.
Lukic er 29 ára gamall serbneskur landsliðsmaður sem leikur á miðjunni.
Hann gekk til liðs við Fulham í byrjun árs 2023 og lék 106 leiki á þremur og hálfu tímabili hjá félaginu. Í þeim skoraði hann þrjú mörk.
Serbinn verður áfram í ensku úrvalsdeildinni en Ipswich hefur keypt hann á níu milljónir punda. Hann skrifaði undir samning til ársins 2030.
„Það fyllir mig stolti að ganga til liðs við þetta félag. Ég veit að það á sér ríka sögu og er með frábæra stuðningsmenn. Ég get ekki beðið eftir að byrja.“
„Ég hef áður spilað á Portman Road og andrúmsloftið þar var eitt það besta sem ég hef upplifað. Ég hlakka mikið til að spila þar sem heimamaður.“
„Ég er miðjumaður sem fer á milli teiga og gef allt mitt í hvert einasta skipti sem ég stíg inn á völlinn. Ég hlakka til að hitta alla og hefja ævintýrið hér,“ sagði Lukic.

????? Ipswich Town is proud to announce the signing of central midfielder Saša Luki? from Fulham.
— Ipswich Town (@IpswichTown) August 8, 2026
Saša has signed a deal running to the summer of 2030.